Í haust verður leiklistarhópur Halldóru með námskeið í Edinborgarhúsinu fyrir börn á aldrinum 8 – 12 ára. Það verða tveir hópar og þeim er skipt eftir aldri. Námskeiðið fer að mestu leyti fram í Edinborgarhúsinu en af og til gæti staðsetning breyst, vegna anna í húsinu. Mikilvægt er að fylgjast vel með öllum breytingum og upplýsingum og hafa abler appið í símanum. (Apple) (Android)
Það verður engin nestispása en það má koma með vatnsbrúsa og best er ef börnin hafa fengið sér eitthvað að borða áður en þau mæta því það þarf að hafa næga einbeitingu og orku.
3. og 4. bekkur þriðjudaga og föstudaga kl. 14:15 – 15:45
5. – 7. bekkur miðvikudaga og fimmtudaga kl. 14:15 – 15:45
Námskeiðin enda á leiksýningu sem selt verður inná til að styrkja leiklistarhópinn, kaupa leikmuni eða búninga ef þarf og borga húsaleigu í Edinborgarhúsinu. Allir skráðir þátttakendur fá tvo frímiða á sína sýningu sem þeir geta notað til að bjóða þeim sem þeir vilja og auk þess þurfa nemendur ekki að borga inn á sýningar hinna hópanna.
Eldri hópurinn ætlar að þessu sinni að setja upp söngleikinn Glanni glæpur í Latabæ og yngri hópurinn setur upp söngleikinn Matilda.
Dans, dans, dans!
Leiklistarhópur Halldóru í samvinnu við Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar mun einnig bjóða upp á dansnámskeið fyrir yngstu börnin þar sem kennarar verða tvær ungar stúlkur sem lærðu klassískan dans í Listaskóla Rögnvaldar þegar þær voru yngri. Þær Helena Stefánsdóttir (18 ára) og Sigurbjörg Danía Árnadóttir (17 ára). Kennslan byggir á því sem þær lærðu og er þetta ákveðið tilraunaverkefni til að kanna áhuga á danskennslu svo hún geti orðið fastur punktur í menningar- og tómstundalífi sveitarfélagsins.
Börn fædd 2021 og 2020: dans og hreyfing kl. 16:15 – 17:00 þriðjudaga og 17:15 – 18:00 miðvikudaga (Verð 30.000 kr)
Börn fædd 2017* – 2019: dans og hreyfing kl. 16:15 – 17:00 á miðvikudögum og 17:15 – 18:00 á fimmtudögum (Verð 30.000 kr)
Börn fædd 2014 – 2017*: dans/söngur kl. 17:15 – 18:00 á þriðjudögum og 16:15 – 17:00 á fimmtudögum (Verð 30.000 kr)
Þeir sem vilja æfa bæði leiklist og dans geta fengið pakkatilboð og þá kosta námskeiðin 55.000 kr samanlagt. Hægt er að sækja um greiðsludreifingu og dreifa greiðslum í allt að 5 skipti og það er hægt að nota frístundastyrkinn.
*Börn fædd árið 2017 geta valið þann hóp sem hentar þeim betur tímalega og áhugalega séð. Yngri hópurinn mun meira vera í klassískum dansi á meðan eldri hópurinn í söngleikjadansi.
Búið er að opna fyrir skráningu og hægt er að mæta í 1-2 prufutíma og skrá börnin svo, hafi þau áhuga. Skráningu lýkur 20. september
Hægt er að hafa samband með því að senda póst á doruleiklist@gmail.com
Matilda – 3. og 4. bekkur – Haust 2026
Lögin með söng
Glanni glæpur í Latabæ – 5. og 6. bekkur – Haust 2026
Handritið má nálgast hér Lögin má nálgast hér og söngtextana hér
