Sumarnámskeiðin 2026 verða vikurnar
22. – 26. júní
29. júní – 3. júlí
3. – 7. ágúst
10. – 14. ágúst
Eldri krökkunum er boðið upp á söngleikjanámskeið eða leiklistarnámskeið. Á söngleikjanámskeiðinu verða æfð þekkt söngleikjaatriði úr leikhúsi og kvikmyndum. Það námskeið er meira krefjandi en um leið rosalega gefandi. Allir fá að spreyta sig á þekktum hlutverkum og láta ljós sitt skína.
Á leiklistarnámskeiðinu verður verður æft frumsamið leikrit með söngvum. Það verður farið í leiki og spuna og tekið upp frumsamið lag og gefið út.
Yngri krakkarnir fá leiklistarnámskeið þar sem verður æft frumsamið leikrit með söngvum, farið í göngutúra og út að leika, sungið, dansað og leikið allan daginn. Einnig verða búnir til leikmunir og leikmynd sem nýta á í sýningunni.
Námskeiðið er frá mánudegi til föstudags og byrjar klukkan 9 og því lýkur klukkan 15. Á föstudeginum er aðstandendum boðið á leiksýningu klukkan 14:00.
Börnin þurfa að hafa með sér tvöfalt nesti og hnetur eru stranglega bannaðar. Það er frjáls tími í nestispásunum og hægt að velja um það að borða úti eða inni. Það er tré gólf í Edinborgarhúsinu og því mælum við eindregið með því að krakkarnir séu í skóm inni, sérstaklega uppi í Rögnvaldarsal. Þá er gott að vera í þægilegum strigaskóm eða inniskóm.
9 ára krakkar sem hafa áður komið á námskeið leiklistarhópsins geta valið hvort þeir séu í eldri eða yngri hópnum, en það eru gerðar meiri kröfur í eldri hópnum.
Það er hægt að nota frístundastyrkinn til að greiða fyrir námskeiðin og einnig er 20% magn- og systkinaafsláttur svo öll mega koma aftur og aftur. Þó námskeiðin séu af sama sniði þá eru þau fjölbreytt og alltaf ný lög og ný leikrit sem verða æfð
Hægt er að skrá sig inná Abler
Umsjónarkennari er Halldóra Jónasdóttir með B.ed. gráðu í leiklistarkennslu og MA í Applied Theatre and Intervention en auk hennar verða unglingsstelpur með mikla reynslu sem hafa allar komið áður á námskeið og geta nú miðlað sinni þekkingu og reynslu til barnanna.
Hér má hlusta á upptökur af frumsömdu lögunum sem voru sungin í hverri viku á sumarnámskeiðinu 2025.
